Kristín Steinsdóttir kemur í Norræna húsið sunnudaginn 16. september til að lesa fyrir svöng börn úr bók sinni Franskbrauð með sultu.
Kristín er höfundur fjölda bóka og leikrita bæði fyrir börn og fullorðna. Franskbrauð með sultu er fyrsta skáldsaga hennar og fyrir hana hlaut hún Íslensku barnabókaverðlaunin 1987. Kristín hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar, t.a.m Norrænu barnabókaverðlaunin, Menningarverðlaun DV og Fjöruverðlaunin.
Klóki Jói og prinsessan
Candace Fleming kemur í Norræna húsið á sunnudaginn til að lesa söguna um klóka Jóa fyrir börn. Jói lendir í vanda þegar hann fær óvænt boð til hallarinnar í afmæli prinsessunnar. Jói vill gjarnan fara en mamma hans bendir honum á að hann eigi ekkert nógu fínt til að gefa afmælisprinsessunni enda séu þau mæðgin bláfátæk. En, eins og sést á meðfylgjandi mynd, þá fær Jói bráðsnjalla hugmynd og honum tekst að gera sér mat úr engu.
Candace Fleming er bandarískur höfundur myndabóka, skáldsagna og fræðibóka fyrir börn, þeirra á meðal bókina Clever Jack takes the Cake. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna, hefur oft verið á heiðurslista bandarísku bókasafnasamtakanna ALA, hefur hlotið Boston Globe-Horn Book bókaverðlaunin, Gyllta flugdrekann og bókmenntaverðlaun Publisher’s Weekly. Fleming er sagnfræðingur að mennt og nýtir menntun sína til þess að glæða fortíðina lífi í skáldskapnum.
Smurbrauð, þrykkimyndir og sögugerð
Skráning í vinnustofurnar á sunnudeginum stendur nú yfir og enn er laust í nokkrar vinnustofur.
- Þýski rit- og myndhöfundurinn Jutta Bauer kennir myndskreytingar og sögugerð. Vinnustofan er fyrir 6-10 ára og hefst klukkan 12:00.
- Danski matreiðslubókahöfundurinn Katrine Klinken kennir börnum átta ára og eldri að gera smurbrauð í tveimur vinnustofum kl 13:00 og 14:00.
- Rit- og myndhöfundurinn Eric Rohmann kennir krökkum segja sögu í myndum í vinnustofu sem hefst kl. 14:30, hentar börnum níu ára og eldri.
Athugið að takmarkaður fjöldi þátttakenda er í allar vinnustofurnar og því nauðsynlegt að skrá börnin á: myrinskraning@gmail.com
Jakob Martin Strid
Því miður varð Jakob Martin Strid að afboða komu sína á síðustu stundu, hann kemst ekki af óviðráðanlegum orsökum. Strid tekur því ekki þátt í málstofunni Að éta eða vera étinn? sem hefst í Norræna húsinu kl. 15:30 næstkomandi laugardag, en málstofugestir verða samt sem áður ekki sviknir því Svein Nyhus, Sigrún Eldjárn og Ragnheiður Gestsdóttir munu halda þar æsispennandi fyrirlestra um mat og græðgi, vini sem eru étnir og þá sem eiga það til að éta vini sína. Þórarinn Eldjárn ávarpar málstofuna og málstofustjóri er Egill Helgason. Allir velkomnir.
Á meðfylgjandi mynd má sjá glorhungraðan og sísvangan krakkagemling eftir Svein Nyhus.
Að éta mann og annan
Í málstofunni “Megrun, mannát og afneitun í íslenskum barnabókum” fjallar Dagný Kristjánsdóttir um mannætuna í bók Þórarins Leifssonar, Leyndarmálið hans pabba.
Dagný Kristjánsdóttir er prófessor í íslenskum nútímabókmenntum við Háskóla Íslands. Helstu rannsóknarsvið hennar eru bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Doktorsritgerð hennar, Kona verður til (1996) er fyrsta doktorsritgerðin sem skrifuð er um íslenskar kvennabókmenntir. Nýjasta bók Dagnýjar er bókmenntasaga ætluð fyrir framhaldsskóla, Öldin öfgafulla (2010). Dagný hefur birt fjölmargar greinar hér á landi sem erlendis um íslenskar barnabókmenntir og von er á nýrri bók eftir hana, Bókabörn, sem fjallar um barnabókmenntir.
Höfuðlausir englar og fátækir riddarar
Í málstofunni “Megrun, mannát og afneitun í íslenskum barnabókum” fjallar Ármann Jakobsson um flókna samveru barns, guðdóms og matar í sögum Maríu Gripe Jósefína, Húgó og Húgó og Jósefína sem komu út á íslensku 1973–1975.
Ármann Jakobsson er prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið Ármanns er mjög vítt en hann hefur meðal annars rannsakað miðaldabókmenntir, menningarfræði og þjóðfræði og hefur hann skrifað bækur og greinar um þessi efni. Þá hefur Ármann einnig rannsakað hið yfirnáttúrulega og jaðarfólk og fengið til þess rannsóknarstyrki ásamt samstarfsfólki sínu. Ármann hefur m.a. birt ýmsar greinar um mynd barna, ungmenna og aldraðra í íslenskum heimildum. Hann er, ásamt Torfa Tulinus, annar ritstjóri bókarinnar Miðaldabörn (2005).
Málstofan hefst kl. 13.00 17. september.
Kynvitund, kossar og ólífur
Í málstofunni “Megrun, mannát og afneitun í íslenskum barnabókmenntum” ræðir Anna Heiða Pálsdóttir um hinn forboðna ávöxt íslenskra unglingabóka – hvað má, hvað á og hvað maður vill.
Anna Heiða Pálsdóttir er doktor í barnabókmenntum frá Háskólanum í Worcester en doktorsritgerð hennar ber titilinn “History, Landscape and National Identity: A Comparative Study of Contemporary English and Icelandic Children’s Literature.“ Anna Heiða hefur kennt ýmis námskeið við Háskóla Íslands og Endurmenntun Háskóla Íslands, þar á meðal um skapandi skrif og barnabókmenntir. Anna Heiða hefur birt greinar um barnabókmenntir auk þess að þýða enskar barna- og unglingabækur á íslensku. Hún er höfundur fantasíunnar Galdrastafir og græn augu en von er á nýrri unglingabók eftir Önnu Heiðu á þessu ári.
Matarlist í íslenskum barnabókum – opnun
Sýningin Matarlist í íslenskum barnabókum var opnuð í anddyri Norræna hússins í dag. Til sýnis eru matartengdar myndir sautján íslenskrar myndhöfunda sem allar hafa birst í íslenskum barnabókum. Kristín Steinsdóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, ávarpaði gesti og bar saman matar- og myndlistarhefðina í barnabókum á árum áður og nú til dags. Margt var um manninn, börn og fullorðna og nutu allir grænu frostpinnanna, myndanna og bókanna sem hægt er að skoða á sýningunni.
Ekki missa af þessari stórskemmtilegu og fróðlegu sýningu fyrir börn á öllum aldri.
Plakat
Matur úti í mýri 2012 – dagskrá
Laugardagur 15. september
Opnun – 14:00 – Arndís Þórarinsdóttir, formaður stjórnar Mýrarinnar, flytur opnunarávarp. Verðlaun verða afhent og vinningshafar lesa upp sögur sínar. Svavar Knútur leikur tónlist. Opnunin fer að hluta til fram á ensku.
Samtal við höfunda – 15:30 – Að éta eða vera étinn? Þórarinn Eldjárn flytur ávarp. Rit- og myndhöfundarnir Svein Nyhus, Sigrún Eldjárn, Jakob Martin Strid og Ragnheiður Gestsdóttir ræða um mat í barnabókum. Málstofustjóri er Egill Helgason. Málstofan fer fram á ensku.
Sunnudagur 16. september
Upplestur – 11:00 – Kristín Arngrímsdóttir les um grallarann Arngrím apaskott. Fyrir 3+
Upplestur – 11:30 – Þórarinn Eldjárn les ljóð fyrir börn á öllum aldri. Fyrir 5+
Vinnustofa – 12:00 – Þýski rit- og myndhöfundurinn Jutta Bauer kennir myndskreytingar og sögugerð. Ath! Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Fyrir 6+.
Upplestur – 12:30 – Rithöfundurinn Candace Fleming les fyrir börn. Fyrir 5+
Vinnustofa – 13:00 – Danski matreiðslubókahöfundurinn Katrine Klinken kennir börnum að gera smurbrauð. Ath! Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Fyrir 8+
Upplestur – 13:30 – Kanadíski rithöfundurinn Polly Horvath les fyrir börn. Fyrir sex+
Vinnustofa – 14:00 – Katrine Klinken kennir börnum að gera smurbrauð. Ath! Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Fyrir 8+
Vinnustofa – 14:30 – Rit- og myndhöfundurinn Eric Rohmann kennir krökkum segja sögu í myndum. Ath! Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Fyrir 9+
Upplestur – 15:00 – Rithöfundurinn Kristín Steinsdóttir les fyrir börn.
Leiðsögn – 15:00 – Jutta Bauer stýrir leiðsögn fyrir börn um sýninguna Í skóginum stóð kofi einn eftir myndum úr samnefndri bók. Fyrir fjögurra ára og eldri. Athugið að sýningin er í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu.
Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í vinnustofur í netfanginu: myrinskraning@gmail.com, en einnig má skrá sig samdægurs í afgreiðslunni í Norræna húsinu séu ennþá laus pláss.
Allir atburðir Mýrarinnar eru gjaldfrjálsir, þar á meðal vinnustofurnar.
Mánudagur 17. september
Málstofa – 13:00 – Megrun, mannát og afneitun í íslenskum barna- og unglingabókum. Ármann Jakobsson: Höfuðlausir englar og fátækir riddarar. Dagný Kristjánsdóttir: Að éta mann og annan. Anna Heiða Pálsdóttir: Kynvitund, kossar og ólífur: Hinn forboðni ávöxtur í íslenskum unglingabókum. Fyrirspurnir og umræður að fyrirlestrum loknum. Málstofustjóri er Helga Birgisdóttir.
Málstofa – 15:00 – Matur í myndum, drengur í súpu og siðferðislegar vangaveltur. Fridunn Karsrud: Butterbuck soup and other delicious meals. Unni Solberg og Kirsti-Nina Frønæs: Om mat og moral i Thorbjørn Egners Hakkebakkeskogen. Kristin Hallberg: Äta bör man annars dör man. Fyrirspurnir og umræður að fyrirlestrum loknum. Málstofustjóri er Gro Tove Sandsmark. Málstofan fer fram á sænsku og norsku.
Myndlistarsýningar
Matarlist í íslenskum barnabókum – 9.-19. september – Sýning á myndum úr barnabókum í anddyri Norræna hússins – þemasýning á myndlýsingum í íslenskum barnabókum. Myndirnar eru valdar í því augnamiði að sýna fjölbreytta flóru myndhöfunda og margvísleg efnistök en eiga það sameiginlegt að lýsa mat, matseld, borðhaldi og áti í íslenskum barnabókum. Sýningin opnar kl. 14:00 sunnudaginn 9. september.
Í skóginum stóð kofi einn – 15. september – 4. október – Sýning á myndum eftir þýska rithöfundinn Jutta Bauer. Myndirnar eru úr samnefndri bók eftir Bauer sem kom út á íslensku fyrr á árinu. Jutta Bauer verður með leiðsögn um sýninguna fyrir börn kl. 15:00 sunnudaginn 16. september. Athugið að sýningin er á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu.